Þjónusta

Við höfum það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu. Við reynum að sýna hlýlegt viðmót og mæta þörfum viðskiptavina okkar með skilningi. Við viljum gjarnan heyra þegar við getum gert betur en okkur þykir líka gott að heyra þegar vel tekst til.

Í apótekinu okkar er gott aðgengi að lyfjafræðingi. Hafi viðskiptavinir okkar þörf fyrir að ræða um sína lyfjatöku í næði höfum við gott viðtalsherbergi þar sem hægt er að ræða málin í einrúmi. Óskaðu endilega eftir samtali við lyfjafræðing teljir þú þörf á því. Slík þjónusta er án endurgjalds.

 

Svæði

Akureyrarapótek  |  Kaupangi v/Mýrarveg  |  Sími 460 9999  |  akap@akap.is  |  Beinn sími fyrir heilbrigðisstarfsfólk 460 9990  | Fax 460 9991