Á meðan beðið er

Okkar minnstu og dýrmætustu viðskiptavinir þurfa ekki að láta sér leiðast á meðan beðið er eftir meðalinu. Við höfum útbúið lítinn krók fyrir þá þar sem þeir geta virkjað ímyndunaraflið og teiknað og litað. Þeir geta svo ráðið því hvort þeir gefa mömmu og pabba myndina eða okkur - því við geymum allar myndir sem eftir verða.

Eldra fólkið getur svo tyllt sér niður og fengið sér kaffi á meðan beðið er. Stundum komast gamlir vinir á þvílíkt spjall hjá okkur að þeir mega ekkert vera að því að fá afgreiðslu. Og það er allt í lagi okkar vegna, allt hefur sinn tíma.

Barnahorn kaffihorn

Svæði

Akureyrarapótek  |  Kaupangi v/Mýrarveg  |  Sími 460 9999  |  akap@akap.is  |  Beinn sími fyrir heilbrigðisstarfsfólk 460 9990  | Fax 460 9991