Lamisil Once 1% 4g
186638
Product information
Attachments
Short description
Lagerstaða
Description
Lamisil Once verkar þannig að það drepur sveppinn sem veldur fótsveppnum. Þegar það er borið á fótinn skilur það eftir sig litlausa himnu sem helst á húðinni og losar virka efnið inn í húðina
Hvernig þekkja má fótsvepp (tinea pedis)?
Fótsveppur kemur eingöngu fram á fótum
Hann byrjar oft milli tánna og getur borist á iljar og jarka fótanna
Algengasta gerð fótsvepps veldur því að húðin springur eða flagnar, en einnig geta komið fram vægur þroti, blöðrur eða vessandi sár. Þessu fylgir oft kláða- eða sviðatilfinning
Ef þú ert í vafa hvort þú þjáist af fótsvepp skaltu ráðfæra þig við lyfjafræðing eða lækni áður en þú notar Lamisil Once.
Læknirinn gæti hafa látið þig fá Lamisil Once við einhverju öðru
Fylgið alltaf leiðbeiningum læknisins
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan einnar viku.